Á síðunni eru uppskriftir af bollum og vanillukremi sem er tilvalið að setja í bollurnar með rjómanum


En hér eru tvær uppskriftir af bollum sem ég bakaði í gær.
VATNSDEIGSBOLLUR
50gr smjör
2dl vatn
100gr hveiti
3 egg
Vatn og smjör soðið vel saman, hveitinu blandað saman við og látið kólna í 4mín áður en eggjunum er bætt einu í einu útí.
Mér finnst best að setja deigið á ofnplötuna með rjómasprautu en sumum finnst gott að setja það á með skeið.
Passið að opna ofnin ekki fyrstu 10min.
Bakið við 200°c í 20-25mín eftir stærð.
GERBOLLUR
3dl volgt vatn
70gr smjörlíki
3tsk þurrger
1/2tsk salt
1/2 kardimommudropar ég sleppti þeim.
400gr hveiti
Ég hitaði mjólkina í potti og setti smjörlíkið með og lét það bráðna.
Hnoðaði svo allt vel saman og lét hefast í 45mín
mótið bollur og pennslið með eggi og látið hefast aftur í 20 mín
þá verða .þær svo léttar og góðar
Bakið við 200°c í 10-15mín.
Svo er hér snilldaruppskrift af saltkjöti og baunum á
Saltkjöt og baunir. Látið kjöt í stóran pott með vatni. Passið
að skola kjötið fyrst. Látið suðuna koma upp. Setjið baunir útí, gott
er að kaupa baunir sem þarf ekki að leggja í bleyti. Sjóðið í smá
stund, setjið rófur, gulrætur lauk og beikon útí og látið sjóða allt
saman í 11/2 til 2 tíma... Mér finnst líka allt í lagi að setja kartöflurnar með.Allra best finnst mér að útbúa þetta daginn áður en ég ætla að hafa þetta það er algjör snilld. Amma Leifa bjó alltaf til soðkökur með saltkjöti. Hér kemur uppskrift af þeim.3 bollar hveitisoð af saltkjötinu Búnir eru til svona klattar, ekki of þykkir og þeir eru látnir sjóða í pottinum í tuttugu mínútur. Verði ykkur hjartanlega að góðu. Hafdís systir mín gaf mér þessa uppskrift þegar ég var nýbyrjuð að búa. Mér finnst þetta best í heimi.
Verði ykkur að góðu.